Þrír langhlauparar úr UFA tóku þátt í Laugavegshlaupinu sem fram fór í gær. Rannveig Oddsdóttir lauk hlaupinu á 5:37:42 sem tryggði henni fyrsta sæti kvenna og er jafnframt annar besti tími kvenna í hlaupinu frá upphafi. Halldór Halldórsson hljóp á 6:07:50. og Leonard Birgisson á 7:32:05 -en hann fékk krampa í kálfann um mitt hlaup og mátti því ganga að mestu seinni hluta leiðarinnar. Á fréttasíðu Langhlauparadeildar má lesa meira um hlaupið.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.