• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Fréttir

Lokadagur Akureyrarmótsins

Á morgun þriðjudag er lokadagur Akureyrarmótsins, þá keppa 8 ára og yngri, 9-10 ára og 11-12 ára.  Keppni hefst kl. 15 og líkur um kl. 17, keppendur þurfa að mæta minnst hálftíma fyrir keppni til upphitunar.  Eins biðjum við foreldra að rétta okkur hjálparhönd við framkvæmd mótsins.  Viðurkenningar fyrir Akureyrarmótin verða afhentar á haustfundinum okkar, auglýsum hann nánar þegar að því kemur.
Lesa meira

Langhlauparar í Reykjavíkurmaraþoni

Rannveig Oddsdóttir langhlaupari úr UFA varð þriðja kona í hálfu maraþoni í Reykjavíkurmaraþoni sem fram fór í morgun. Rannveig varð fyrst íslenskra kvenna á tímanum 1:27:28. Sigríður Einarsdóttir hljóp einnig hálft maraþon og náði fimmta sæti íslenskra kvenna á tímanum 1:36:05 sem er hennar besti tími í hálfu maraþoni til þessa
Bjartmar Örnuson varð áttundi í heildina í 10 km. hlaupi og fimmti íslendingurinn í mark en hann hljóp á 35:54.
Fjóla Dröfn Guðmundsdóttir, Þengill Ásgrímsson og Manolito Petrus Van Haren sem öll hafa æft með langhlauparadeildinni til lengri eða skemmri tíma hlupu einnig hálft maraþon og Elías Gíslason fór sitt fyrsta heila maraþon og lauk því 3:54:56. Heildarúrslit í öllum vegalengdum Reykjavíkurmaraþons má lesa á heimasíðu hlaupsins.

Lesa meira

Heimasíða Akureyrarhlaups

Undirbúningur Akureyrarhlaups er komin vel af stað og nú hefur ný og glæsileg heimasíða hlaupsins verið opnuð. Nú er rétti tíminn til að taka fram hlaupaskóna og byrja að hita upp fyrir hlaupið sem fer fram laugardaginn 15. september. Kíkið á síðuna og finnið ykkur markmið við hæfi og æfingaáætlun að fylgja fram að hlaupi.
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA