• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Fréttir

Bjartmar setti brautarmet í Hellisfjarðarhlaupi

Bjartmar Örnuson tók þátt í Hellisfjarðarhlaupi sem fram fór í Neskaupsstað um Verslunarmannahelgina. Hellisfjarðarhlaupið er víðavangshlaup þar sem hlaupið er um fjölbreytt land, móa, mýrar, fjörur og tún. Hlaupið hefst í Hellisfirði og endar í Neskaupsstað. Bjartmar hljóp kílómetrana 13 á 59:17 og var steinsnar á undan Vigni Má Lýðssyni sem varð annar á 59:20. Á heimasíðu hlaupsins má fræðast frekar um hlaupið og sjá öll úrslit.

Lesa meira

Akureyrarmótin að hefjast

13 ára og eldri þriðjudaginn 14. ágúst, 11 ára og eldri fimmtudaginn 16. ágúst frá kl. 18:00 til 21:00, skila skráningarblöðum til þjálfara á morgun.  10 ára og yngri og 11-12 ára þriðjudaginn 21. ágúst frá kl. 15:00-17:00 skila skráningum til þjálfara mánudaginn 20. ágúst.  Foreldrar sem vilja starfa við mótið vinsamlegast hafið samband við Svanhildi svansak@internet.is . Drög af tímaseðli er hægt að sjá inni á mótaforriti FRÍ
Lesa meira

Unglingalandsmótinu á Höfn lokið

Þriðja og síðasta keppnisdegi Unglingalandsmótsins er lokið og var mótinu slitið nú í kvöld. Þetta var önnur stærsta útihátíðin yfir helgina en ólíkt öðrum hátíðum þá hefur þessi verið blessunarlega laus við vandamál sem virðast fylgja flestum öðrum útihátíðum. Vinsældir mótsins hafa aukist ár frá ári en þetta var í 10. sinn sem mótið var haldið. Á næsta ári verður mótið haldið á Þorlákshöfn og árið 2009 á Grundarfirði.

Úrslitin hjá okkar fólki í dag voru ekki af verri endanum frekar en vanalega.

Ásgerður Jana varð 1. í hástökki og 3. í langstökki í flokki 11 ára stelpna.
Bjarki Kjartansson náði 3. sæti í 60m hlaupi 12 ára stráka.
Elise Marie varð 2. í hástökki 13 ára stelpna.
Agnes Eva varð 3. í langstökki 14 ára stelpna.
Snorri Björn vann 1. sætið í 100m hlaupi og 3. sætið spjótkasti 14 ára stráka.
Kristján Ingi varð 2. í langstökki 17-18 ára stráka.

Boðhlaupsveit 14 ára strákanna okkar náði silfrinu í 4x100m, en í henni voru Snorri, Sindri, Örn Dúi og Hjalti.
Boðhlaupssveit sem Elvar Örn og Kristján voru hluti af, vann flokk 17-18 ára stráka.

Óskum við öllu okkar fólki til hamingju með glæsilegan árangur helgarinnar og vonum af allir hafi skemmt sér vel.

Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA