• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Fréttir

Sigurður Magnússon 3 faldur Íslandsmeistari

Sigurður varð Íslandsmeistari í langstökki, hástökki og stangarstökki í 45-49 ára flokki á MÍ öldunga um síðustu helgi auk þess vann hann til verðlauna í spjóti, kringlu og kúlu.  Til haminjgu með árangurinn Sigurður
Lesa meira

2 Íslandsmeistaratitlar í dag

MÍ 15-22 ára fór fram á Laugum í Reykjadal um helgina.  UFA átti þar 15 keppendur og stóðu þau sig með sóma.  Íslandsmeistarar urðu Bjartmar Örnuson í 800 m hlaupi og Eygló Ævarsdóttir í kúluvarpi bæði í flokki 19-22 ára.  Önnur verðlaun Bjartmar Silfur í 400 og 1500 m og brons í 3000 m, Eygló silfur í sleggju og brons í spjóti,  Elvar Örn silfur í stöng og langstökki 15-16 ára,  Elvar Freyr silfur í hástökki og 400 m grind og brons í 110 m grind 19-22 ára, Þorsteinn Helgi brons í hástökki og 110 m grind 17-18 ára, Valgerður Þorsteinsdóttir silfur í hástökki, spjóti og þrístökki 19-22 ára, Sunna Ævarsdóttir brons í kúlu og boðhlaupssveitirnar fengu silfur í 4*100 í 17-18 ára og brons í 4*400 í 19-22 ára flokknum.  Fínn árangur sem er 6. sætið í heildarstigakeppninni.
Lesa meira

Norðurlandsleikar

Nokkrir UFA krakkar tóku þátt í Norðurlandsleikunum á Sauðárkróki um helgina.  Þau stóðu sig með sóma og sópuðu að sér verðlaunum.  Úrslitin má sjá á mótaforritnu, http://157.157.136.9/cgi-bin/ibmot/timesedillib775.htm
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA