Flýtilyklar
Fréttir
Metþátttaka í Gamlárshlaupi
Í 4 km hlaupi var Bjarki Gíslason fyrstur á 17:09, annar var Einar Máni Friðriksson á 17:59 og þriðji var Tryggvi Unnsteinsson á 19:26. Fyrst kvenna var Tinna Sif Sigurðardóttir á 18:20, önnur var Halldóra S. Halldórsdóttir á 19:26 og þriðja var Arna Björg Jónasardóttir á 19:27. Í 10 km hlaupi var Björn Margeirsson fyrstur á 34:51, Bjartmar Örnuson var annar á 34:58 og þriðji var Andri Steindórsson. Í kvennaflokki var Rannveig Oddsdóttir fyrst á 42:00 Sigríður Einarsdóttir var önnur á 43:16 og þriðja var Björk Sigurðardóttir á 46:15.
Tímar allra sem hlupu, úrslit í aldursflokkum og staðan í stigakeppni vetrarhlaupanna verður birt hér á síðunni innan tíðar.
Enn bætir Bjarki Íslandsmet
Á jólamóti ÍR í gær vann Bjarki stangarstökki með stökki upp á 4,65 m sem er nýtt Íslandsmet og á Bjarki þá eins og áður hefur komið fram íslandsmetið í 3 flokkum drengja, unglinga og ungkarla bæði innan og utanhúss. Bjarki hefur 5 sinnum á árinu bætt Íslandsmetið innanhúss 12 flokkamet og 4 sinnum bætt metið utanhúss 11 flokkamet. Sannarlega glæsilegur árangur. Til hamingju Bjarki.
Gamlárshlaup UFA
Gamlárshlaup og ganga UFA fer að venju fram á gamlársdag. Göngufólk í 10 km göngu verður ræst út klukkan 10:00 en aðrir klukkkan 11:00 frá Bjargi, búnings og pottaðstaða í boði. Við hvetjum alla til að taka þátt og hlaupa eða ganga sér til ánægju. Líkamsræktarstöðin Bjarg gefur útdráttarverðlaun og verðlaun fyrir skrautlegasta búning liða. Nánari upplýsingar um hlaupið.