• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 15-22 ára 2021

    UFA býður upp á frjálsíþróttaæfingar fyrir alla aldurshópa. Við getum bætt við okkur iðkendum í öllum aldursflokkum. Nánari upplýsingar hér.

  • MÍ 11-14 2021

Öfugur og styttur Gamlárshringur

Byrjað á Bugðusíðu við Bjarg, hlaupið út götuna og niður Austursíðu, Hlíðarbrautinni síðan fylgt yfir Glerá og að Skógarlundi, hlaupið eftir Skógarlundi að Mýrarvegi. Mýrarvegi fylgt að Mímisbraut, niður Mímisbraut að Hringteigi og honum fylgt umhverfis VMA. Hlaupið til baka eftir Mýrarvegi, Skógarlundi og Hlíðarbraut að göngustígnum í gegnum Giljahverfið. Upp göngustíginn að hringtorgi á Borgarbraut og niður Bugðusíðuna að Bjargi.

Vegalengd u.þ.b. 8,6 km.

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA