• hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Fréttir

Marsmót UFA

Næstkomandi laugardag 20. mars verður Marsmót UFA haldið í Boganum.
Mótið er öllum opið og hvetjum við iðkendur til að bjóða vinum með til keppni.
Keppnisgjald er kr 1000 óháð fjölda greina sem keppt er í og fá allir keppendur þáttökuverðlaun.

Keppnisgreinar eru eftirfarandi:
10 ára og yngri: þrautabraut
11 - 12 og 13 - 14 ára: þríþraut þ.e. langstökki, kúluvarpi og 60 m. spretti. Aukagrein verður 60 m. grindahlaup
15 ára og eldri: 60 m. haupi, 60 m grindahaupi og langstökki.


Keppni hefst hjá yngsta flokknum kl. 14:00 en kl. 15:00 hjá eldri hópunum.
Drög að tímaseðli kemur á mótaforrit FRÍ á miðvikudagskvöld eða í síðasta lagi á fimmtudagsmorgun.
Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og eiga með okkur góðan dag.

Lesa meira

MÍ 11-14 ára, seinni keppnisdagur

Þá er seinni degi á MÍ lokið. Krakkarnir stóðu sig vel í dag.  

Rún Árnadóttir í flokki 12 ára varð í 3.sæti í hástökki, stökk 1,35m 

Ásgerður Jana Ágústsdóttir í flokki 14 ára varð í 2.sæti í langstökki, stökk 4,80m og í 3.sæti í 60m grindahlaupi á 9,95sek

Sunna Rós Guðbergsdóttir 13 ára varð í 5.sæti í langstökki, stökk 4,38m 

Dagný Guðmundsdóttir 12 ára varð í 6-7.sæti í hástökki, stökk 1,25m og í 8.sæti í kúluvarpi, kastaði 7,60m 

Berglind Björk Guðmundsdóttir 12 ára stökk 1,25 í hástökki og varð í 10.sæti. 

12ára stelpurnar lentu svo í 6.sæti í 4x200m boðhlaupi                     

Ufa getur verið stolt af sínu fólki, allir gerðu sitt besta, voru félaginu til sóma og öðluðust reynslu og þroska af ferðinni.

Lesa meira

MÍ 11-14 ára, fyrri keppnisdagur

Meistaramóti Íslands 11-14 ára, fer fram nú um helgina í Laugardalshöllinni í Reykjavík, 379 keppendur eru skráðir frá 19 félögum víðsvegar um landið. Í okkar hópi eru 12 keppendur  ásamt nokkrum foreldrum og Unnari og Maríu þjálfurum.  Gist er, ásamt UMSE, í félagsmiðstöðinni Frostaskjóli. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum hefur allt gengið vel og er ekki vitað annað en að allir skemmti sér hið besta.  Keppendur enduðu daginn í gær á að fara í sund og lazer-tag.
Af árangri gærdagsins má nefna að:

Ásgerður Jana Ágústsdóttir varð Íslandsmeistari í hástökki 13 ára stelpna en hún stökk 1,59m hún varð einnig í 5.sæti í kúluvarpi, kastaði 9,39m

Sunna Rós Guðbergsdóttir í flokki 13 ára varð í 2.sæti í 60m hlaupi á 8,65sek. 

Valþór Ingi Karlsson í flokki 13ára varð í 3.sæti í kúluvarpi kastaði 10,75m

Berglind Björk Guðmundsdóttir í flokki 12ára varð í 8.sæti í langstökki stökk 3,97m  

Hinar 12 ára stelpurnar, Monika Sól Jóhannsdóttir, Dagný Guðmundsdóttir , Rún Árnadóttir og Máney Nótt Steinþórsdóttir stóðu sig einnig mjög vel í langstökkinu, voru allar fyrir framan miðju en yfir 50 keppendur voru í þessum flokki.

Frábær árangur hjá okkar fólki!

Lesa meira

Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA