Flýtilyklar
Fréttir
Vetraríþróttahátíðin Éljagangur - snjóhlaup
MÍ seinni dagur, 2 Íslandsmeistaratitlar
Bjartmar Örnuson varð Íslandsmeistari í 800m hlaupi á 1:59,70mín og strákarnir í UFA sveitinni í 4x400m boðhlaupi urðu Íslandsmeistarar á 3:24,41mín Í sveitinni voru Bjarki, Bjartmar, Kolbeinn Höður og Örn Dúi.
Stelpurnar, þær Agnes Eva, Heiðrún Dís, Ásgerður Jana og Rakel Ósk urðu í 2. sæti í 4x400m boðhlaupi á 4:07,35mín
Agnes Eva Þórarinsdóttir varð í 3. sæti í 60m grindahlaupi á 9,57sek og þrístökki stökk 10,58m. Rakel Ósk Björnsdóttir varð í 3. sæti í stangarstökki með 2,85m
Örn Dúi Kristjánsson varð í 3. sæti í 60m grindahlaupi á 8,79sek
Í heildarstigakeppninni varð UFA í 4. sæti, ÍR sigraði, hafði mikla yfirburði, en þau 3 félög sem næst komu þ.e. HSK/Selfoss, FH og UFA voru mjög jöfn. UFA varð í 3.sæti í stigakeppni kvenna og í 4. sæti hjá körlum.
Til hamingju keppendur og þjálfarar!
MÍ- Kolbeinn Höður Íslandsmeistari í 400m hlaupi
Bjartmar Örnuson varð svo í 3. sæti í 400m hlaupinu á 50,85sek þannig að þetta hefur verið hörð keppni.
Elvar Örn Sigurðsson varð í 2. sæti í stangarstökki, stökk 4,25m
Rakel Ósk Björnsdóttir hafnaði í 3. sæti í 400m hlaupi á 59,88sek og Heiðrún Dís Stefánsdóttir í 4. sæti á 60,07sek
Eftir fyrri dag er UFA í 3. sæti í heildarstigakeppninni með 6.115 stig, ofar eru ÍR í 1. sæti með 15.100 stig og FH með 7.097 stig í 2. sæti. Í kvennaflokki er UFA í 2. sæti, næst á eftir ÍR en í karlaflokki í 4. sæti.
Áfram svo UFA á morgun!