Flýtilyklar
Fréttir
MÍ í fjölþrautum
Meisataramót Íslands í fjölþrautum innanhúss var haldið um helgina í Laugardalshöllinni. Þrír keppendur frá UFA tóku þátt. Stefán Þór Jósefsson varð í 2.sæti í sjöþraut pilta 18-19 ára með 3.299 stig, Ásgerður Jana Ágústsdóttir varð í 2.sæti í fimmtarþraut stúlkna 17 ára og yngri með 2.161 stig og Melkorka Ýrr Gunnarsdóttir varð í 3. sæti með 1.307 stig.
Lesa meira
Æfingar hafnar að nýju
Æfingar í öllum flokkum eru hafnar aftur að loknu jólaleyfi. Æfingatímar eru þeir sömu og áður utan það að föstudagsæfingar hjá iðkendum 11-14 ára hefst kl. 16 í stað 16:30 áður.
Lesa meira
Uppskeruhátíð UFA
Boðað er til uppskeruhátíðar UFA 2011, þriðjudaginn 17. janúar kl. 17:30-19:00 í kaffiteríu íþróttahallarinnar. Íslandsmeistarar fá afhent viðurkenningarskjöl frá félaginu og veittar verða viðurkenningar fyrir ástundun og framfarir. Þá verður kjöri íþróttamanns UFA 2011 lýst. Allir iðkendur UFA eru hvattir til að mæta ásamt fjölskyldum og velunnurum félagsins. Boðið verður upp á kraftmikla súpu með brauði og kaffi fyrir þá sem vilja.
Með von um að sjá sem flesta!
Stjórn og þjálfarar UFA.