Hafdís Sigurðardóttir varð tvöfaldur Íslandsmeistari í dag þegar hún sigraði 100m hlaup kvenna á 11,93sek sem er hennar besti tími og var hún að hlaupa í fyrsta skipti undir 12 sek, hún sigraði einnig langstökkið er hún stökk 5,89m.
Kolbeinn Höður Gunnarsson varð í 2.sæti í 400m hlaupi á 48,99sek aðeins örfáum sekúndubrotum á eftir Trausta Stefánssyni FH, þetta er persónulegt met hjá Kolbeini.
Kolbeinn bætti sig einnig í 100m hlaupi, hljóp á 11,0sek og varð í 3.sæti.
Rakel Ósk Björnsdóttir varð í 2.sæti í stangarstökki með 2,62m í 3.sæti í 400m hlaupi á 61,36sek.
Í heildarstigakeppninni er lið UFA í 4.sæti, stigahærri eru lið ÍR sem er stigahæst, FH og HSK/Selfoss. UFA konur eru í 3.sæti á eftir liðum FH og ÍR og UFA karlarnir eru í 4.sæti en stigahærri eru lið ÍR, FH og HSK/Selfoss.´
Keppni hefst á morgun kl 11. Áfram UFA!
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.