• UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

Seinni dagur MÍ 15-22 ára

Lið UFA varð í 5. sæti í stigakeppninni á Meistaramóti Íslands 15-22 ára sem lauk í dag. Fjöldi Íslandsmeistaratitla kom í hlut UFA keppenda í dag. Ásgerður Jana Ágústsdóttir varð tvöfaldur Íslandsmeistari í dag, en hún sigraði spjótkast 16-17 ára, kastaði 41,12m og hún sigraði einnig hástökkið með stökk upp á 1,60m hún varð önnur í kúluvarpi,kastaði 12,29m og þriðja í 200m hlaupi á 27,97sek
Stefán Þór Jósefsson varð Íslandsmeistari í þrístökki 18-19 ára, stökk 12,06m og annar í 110m grindahlaupi á 17,99sek.
Agnes Eva Þórarinsdóttir vann tvo Íslandsmeistaratitla, hún sigraði spjótkast 18-19 ára með 26,70m og 800m hlaup á 2:43,58sek og varð önnur í þrístökki með 10,02m
Kolbrún Helga Hansen vann einnig tvo Íslandsmeistaratitla en hún sigraði hástökk 20-22 ára með 1,30m og 800m hlaup á 3:04,23sek
Kolbeinn Höður Gunnarsson varð Íslandsmeistari í 200m hlaupi 16-17 ára á 22,41sek

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA