• UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

Góð stemning í Gamlárshlaupi

Rúmlega sextíu manns tóku þátt í Gamlárshlaupi og göngu UFA í morgun við frekar ævintýralegar aðstæður. Klofa þurfti snjó upp undir mitti á hluta leiðarinnar, glerhált var á götum og göngustígum og blés nokkuð af norðri með hríðaréljum. Allt gekk þó vel og skiluðu allir sér heilir í mark eftir hressandi útiveru. Að þessu sinni var því einstaklega ljúft að gæða sér á heitri súpu frá RUB23 að hlaupi loknu, ylja sér í heitu pottunum á Bjargi auk þess sem nokkrir þátttakendur fór heim með sjóðheit útdráttarverðlaun frá Bjargi og flugeldasölu Björgunarsveitanna.

Í 5 km hlaupi kom Ólafur Björnsson fyrstur í mark á 25:03, annar var Egill Bjarni Gíslason á 28:13 og þriðji var Bjarni Aðalsteinsson á 28:53. Fyrst kvenna var Elín Hjaltadóttir á 32:19, önnur var Elín Margrét Stefánsdóttir á 38:26 og þriðja var Elsa Sigmundsdóttir á 38:26.

Í 10 km hlaupi kom Þorbergur Ingi Jónsson fyrstur í mark á 36:24, annar var Daniel Chuchala á 37:51 og þriðji var Ívar Sigurbjörnsson á 43:13. Rannveig Oddsdóttir var fyrst kvenna á 45:43, önnur var Sigríður Einarsdóttir á 50:39 og þriðja var Sonja Sif Jóhannsdóttir 52:07.

Tíma allra sem hlupu má sjá hér.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA