• UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

Fréttir

Tilnefningar um Íþróttamann UFA 2012

Opið er fyrir tilnefningar um íþróttamann UFA 2012.  Tilnefningum skal skila til stjórnar UFA fyrir 31. desember. Með tilnefningu skal fylgja greinargerð þar sem íþróttaafrek viðkomandi íþróttamanns eru tíunduð. Úr hópi þeirra sem tilnefndir verða velja stjórn og þjálfarar þrjá til fimm einstaklinga sem kosið verður á milli. Mat á afrekum byggist á árangri í keppni fullorðinna.

Lesa meira

Góð þátttaka í vetrarhlaupi

Hlauparar létu hálkuna ekki á sig fá og mættu vel í vetrarhlaupið í morgun. Þorbergur Ingi Jónsson kom fyrstur í mark og hálkan tafði för hans ekki meira en það að hann hljóp á nýju brautarmeti 34:29. Fyrra met átti Björn Margreisson (34:51) sett i gamlárshlaupi 2008. Annar í mark var Sigurbjörn Árni Arngrímsson sem hljóp á 37:25, -villtist reyndar aðeins af leið en hljóp fulla 10 km og var langt á undan næsta manni, Kolbeini Höð Gunnarssyni sem hljóp á 41:05. Fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 41:07, önnur var Guðrún Nýbjörg Svanbjörnsdóttir á 46:42 og þriðja var Sigríður Einarsdóttir á 47:20. Sex sveitir voru fullskipaðar að þessu sinni og lítur út fyrir spennandi stigakeppni í liðakeppninni. Eyrarskokk 1 sigraði í liðakeppninni í dag, sveit Bjargs var í öðru sæti og Víkingasveitin í þriðja sæti. Hér má sjá tíma allra og stöðuna í stigakeppninni.
Lesa meira

Vetrarhlaup á laugardag

Annað vetrarhlaup vetrarins fer fram næstkomandi laugardag, 24. nóvember. Að venju verður hlaupið frá Bjargi og hefst hlaupið kl. 11:00. Skráning á staðnum frá kl. 10:30. Nánari upplýsingar hér.
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA