• hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Reykjavík International 2013 – Frjálsíţróttahluti

UFA mun eiga 9 keppendur á frjálsíþróttahluta RIG 2013 sem er stærsta frjálsíþróttamót vetrarins á Íslandi en þetta er eina frjálsíþróttamót ársins sem er hluti af mótaröð Evrópska Frjálsíþróttasambandsins (EAA). Það er gríðarlega mikilvægt fyrir mótið að vera viðurkennt af EAA enda hafa fjölmargar fyrirspurnir komið frá erlendum keppendum um að fá að keppa á mótinu.  Færri komust að en vildu en þó mæta 7 erlendir keppendur frá 3 löndum til leiks þetta árið.

Keppendur frá UFA eru eftirfarandi:

  • Agnes Eva Þórarinsdóttir sem keppir í langstökki
  • Ásgerður Jana Ágústsdóttir sem keppir í þríþraut þ.e. 60m grind, langstökk og kúluvarp
  • Berglind Björk Guðmundsdóttir sem keppir í 600m hlaupi í meyjaflokki
  • Bjarki Gíslason sem keppir í stangarstökki
  • Hafdís Sigurðardóttir sem keppir í 60m og langstökki
  • Kolbeinn Höður Gunnarsson sem keppir í 60m og 400m
  • Rakel Ósk Björnsdóttir sem keppir í hástökki og 400m
  • Rannveig Oddsdóttir sem keppir í 3000m
  • Þorbergur Ingi Jónsson sem keppir í 3000m

Við óskum þeim öllum góðs gengis í keppninni á morgun og verður fróðlegt að fylgjast með árangri þeirra nú í upphafi keppnistímabilsins innanhúss. 


Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA