Ljóst er að mikil keppni verður á Meistaramóti Íslands í frjálsíþróttum sem haldið verður í Laugardalshöll um helgina. Keppni hefst kl. 12 á laugardag kl. 11 á sunnudag.UFA á 10 keppendur á mótinu og hafa þau flest verið að gera góða hluti undanfarnar vikur. Það verður því afar fróðlegt að sjá hvernig þeim mun ganga í dag og á morgun. Fylgjast má með úrslitum hér .
Á heimasíðu FRÍ er eftirfarandi umfjöllun um mótið.
Aníta Hinriksdóttir ÍR tekur þátt í 800 m hlaupinu á sunnudag. Hún hefur sett þrjú met það sem af er ári og hefur sýnt að hún getur bætt met þó hún hafi ekki mikla keppni. Í 400m hlaupinu munu þeir Ívar Kristinn Jasonarson ÍR, Kolbeinn H. Gunnarsson UFA og Trausti Stefánsson FH berjast bæði um titil og keppnisrétt á EM, en þeir hafa allir hlaupið vel það sem af er tímabilinu. Ívar og Kristinn hafa hlaupið mjög nærri lágmarki og sama má segja um Trausta. Lágmarkið á EM er 48.00 sek en Kolbeinn er 3/100 sek frá því, Ívar er um 6/100 sek frá því og Trausti um 56/100 sek frá lágmarkinu. Tími Kolbeins er 48:03 sek er jafnframt Íslandsmet og verður spennandi að sjá hvort að það met fellur aðeins 2 vikna gamalt. Aðeins tveir þeirra þriggja komast á EM.
Í 800m metra hlaupinu munu þeir Snorri Sigurðsson ÍR og Kristinn Þór Kristinnsson HSK há einvígi en þeir hafa báðir hlaupið mjög vel og eru stutt frá lágmarkinu en Snorri hefur hraðast hlaupið 1:51.40 mín sem er aðeins 6/10 frá EM lágmarkinu og Kristinn á best 1:51,90 mín.
Hafdís Sigurðardóttir UFA, María Rún Gunnlaugsdóttir Ármanni og Sveinbjörg Zophoníasdóttir FH munu keppa í langstökki og í grindarhlaupi. Hafdís mun etja kappi við Anítu í 400 m hlaupi líka.
Í langstökkinu eru það Kristinn Torfason FH og Þorsteinn Ingvarsson sem báðir berjast um bæði sigurinn en einnig við lágmarkið á EM. Óðinn Björn Þorsteinsson FH er mættur í kasthringinn í fyrsta sinn á þessu tímabili.
Mjög góð þátttaka er í mörgum greinum og eru sem dæmi 32 skráðir til leiks í undanrásum í 60 m hlaupi og 30 í 200 m karla, 14 keppendur í hástökki kvenna svo fáein dæmi séu nefnd.
Mótið er í umsjón frjálsíþróttadeildar ÍR að þessu sinni.