Fréttir

Tobbi međ bćtingu í hálfmaraţoni

Þorbergur Ingi Jónsson langhlaupari úr UFA náði glæsilegum árangri í hálfmarþonhlaupi í Haag um helgina. Hann hljóp á sínu besta tíma til þessa 1:07:54 sem er bæting um eina og hálfa mínútu og þriðji besti tími Íslendings í hálfmaraþoni. Það eru aðeins íslandsmethafinn Kári Steinn Karlsson og fyrrum íslandsmethafi Sigurður Pétur Sigmundsson sem eiga betri tíma og vantar Þorberg innan við þrjár mínútur á Íslandsmet Kára Steins.
Lesa meira

Fundur í langhlaupa- og ţríţrautardeild UFA

Fimmtudaginn 14. mars verður haldinn félagsfundur í Langhlaupa- og þríþrautardeild UFA. Fundurinn er í senn aðalfundur deildarinnar og stefnumóturnarfundur þar sem rætt verður um starfsemi deildarinnar og kynntar hugmyndir um frekari eflingu hennar. Fundurinn verður haldinn í Síðuskóla og hefst kl. 20:00. Fundurinn er öllum opinn og hvetjum við alla þá sem hafa áhuga á langhlaupum og þríþraut til að mæta og taka þátt í umræðunum.

Lesa meira

Aníta keppir í undanúrslitum í dag á EM

8466431808_d87595e619_b1_640Aníta Hinriksdóttir hleypur í síðar í dag í undanúrslitum 800 m  hlaups kvenna. Hún er í seinni riðlinum sem á skv. tímaseðli að hefjast kl. 16:38 að íslenskum tíma. Fyrstu þrjár komast í úrslit sem eru á morgun. Með Anítu í seinni riðli hlaupsins eru keppendur frá Ukraníu og Rússlandi sem báðar eiga tíma undir 2 mín. best., en Aníta er með 5. besta tíman í síðari riðlinum. Hægt er að fylgjast með hlaupinu og mótinu yfirleitt á netútsendingu hér.

 
Lesa meira

Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA