Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
Hafdís Sigurðardóttir tvíbætti Íslandsmetið í langstökki á Kastmóti UFA nú rétt í þessu. Gamla metið var 6,30 m en Hafdís stökk 6,31m í 3. stökki en gerði enn betur í lokastökkinu og stökk 6,36m. Frábær árangur til hamingju Hafdís.
Rannveig Oddsdóttir sigraði í kvennaflokki í Viðavangshlaupi Íslands sem fram fór þann 11.maí í Laugadalnum. Rannveig hljóp á 26:34mín. Kári Steinn Karlsson kom fyrstur í mark í karlaflokki. Góð þátttaka var í hlaupinu en alls luku 103 keppni.