• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

MÍ 11–14 ára

Meistaramót Íslands 11–14 ára verður haldið í Kaplakrika Hafnarfirði 22.–23. júní næstkomandi. UFA verður með hópferð fyrir sína iðkendur á mótið. Farið verður frá Boganum föstudaginn 21. júní kl. 15:30 og keyrt til baka eftir að móti lýkur á sunnudeginum. Áætluð heimkoma er um kl. 22:00. Gist verður í félagsmiðstöðinni Tónabæ og krökkunum séð fyrir fullu fæði alla ferðina, utan það að ætlast er til þess að þau hafi með sér nesti fyrir ferðina suður. Kostnaður á hvert barn er kr. 10.000. Hafa þarf meðferðis íþróttaföt, sundföt, svefnpoka, kodda og vindsæng eða tjalddýnu.

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA