Flýtilyklar
Fréttir
Hafdís með fern verðlaun og Kolbeinn náði lágmarki á EM U19
23. júní 2013
Okkar keppendur í Evrópubikarnum stóðu sig með sóma og komust bæði Hafdís og Kolbeinn á pall.
Lesa meira
Rannveig og Þorbergur íslandsmeistarar í hálfmaraþoni
22. júní 2013
Meistaramót í hálfmaraþonhlaupi fór fram í Akureyrarhlaupinu í morgun og voru það UFA félagarnir Rannveig Oddsdóttir og Þorbergur Ingi Jónsson sem lönduðu Íslandsmeistaratitlum kvenna og karla. Þorbergur hljóp á 1:15:48 sem er nokkuð frá hans besta tíma og Rannveig á tímanum 1:23:10 sem nokkurra sekúndna bæting á hennar besta tíma.
Lesa meira
Skráning hafin í Akureyrarhlaup
Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa og Átaks verður haldið næstkomandi laugardag. Hlaupið er almenningshlaup þar sem boðið er upp á þrjár vegalengdir 5 km, 10 km og hálfmarþon. Keppni í hálfmaraþoni er í ár einnig Íslensmeistaramót í þeirri vegalengd. UFA sér um framkvæmd hlaupsins sem jafnframt er fjáöflun fyrir félagið. Við hvetjum unga sem aldna til að taka þátt með því að hlaupa með eða fara út og hvetja hlauparana áfram (biðjum fólk þó að fara ekki á rúntinn um hlaupaleiðina í þeim tilgangi, heldur leggja bílnum og finna sér góðan stað við hlaupaleiðina til að standa og hvetja).
Skráning er hafin á hlaupasíðunni en einnig verður hægt að skrá sig í Átaki á föstudaginn milli kl. 16 og 20.
Á heimasíðu hlaupsins má sjá allar nánari upplýsingar um hlaupið
Lesa meira