UFA eignaðist tuttugu og einn Unglingalandsmótsmeistara á 18. Unglingalandsmóti UMFÍ. Krakkarnir stóðu sig með stakri prýði bæði innan og utan vallar. Margir bættu sinn persónulega árangur og þess má geta að Andrea Þorvaldsdóttir setti glæsilegt mótsmet í 60m grind 13 ára stúlkna þegar hún kom í mark á tímanum 10,15 sek.
Innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.
Nánari úrslit má finna hér http://46.149.29.198/motfri/SelectedCompetitionResults.aspx?Code=ULM2015
Lesa meira
Hafdís Sigurðardóttir setti nýtt Íslandsmet í langstökki á Akureyri í dag þegar hún stökk 6,56 metra. Hafdís byrjaði strax af krafti og stökk 6,41 m í fyrstu umferð. Það var svo í fjórðu umferð sem Hafdís bætti eigið Íslandsmet um heila ellefu sentimetra þegar hún sveif 6,56 metra. Þess má geta að lágmarkið fyrir HM í Peking í Kína sem fram fer síðar í þessum mánuði er 6,70 metrar og verður Hafdís að ná því fyrir 10.ágúst. Þessi sama hæð er einnig lágmarkið fyrir Ólympíuleikana í Ríó í Brasilíu á næsta ári. Það verður spennandi að fylgjast með Hafdísi á næstu mótum þar sem hún er á fljúgandi siglingu og til alls líkleg.
Hjartanlega til hamingju með glæsilegan árangur Hafdís
Lesa meira
Keppendur UFA stóðu sig afar vel á Meistaramóti Íslands um liðna helgi. Ungmennafélag Akureyrar eignaðist sex Íslandsmeistara ásamt því að koma heim með þrjú silfur og eitt brons. Í stigakeppninni endaði kvennalið UFA í 3.sæti og karlaliðið í 4.sæti en í heildarstigakeppninni lenti UFA í fjórða sæti með 13197 stig sem telst mjög góður árangur.
Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði í 100m hlaupi karla á tímanum 10,89 sek. og í 200m á 21,76 sek.
Stefán Þór Jósefsson sigraði í hástökki með stökk upp á 1,82 metra. Í þrístökki hafnaði Stefán Þór í öðru sæti með stökk upp á 13,44 m.
Hafdís Sigurðardóttir sigraði langstökkið örugglega með stökk upp á 6,39 m. Hafdís lét ekki þar við sitja heldur bætti tveimur Íslandsmeistaratitlum í safnið og sigraði í 100 m hlaup kvenna á 12,02 sek og í 200m hlaupi á 24,43 sek.
Steinunn Erla Davíðsdóttir lenti í öðru sæti í 100 m hlaupi kvenna á tímanum 12,50 sek.
Selma Líf Þórólfsdóttir lenti í öðru sæti í hástökki þegar hún stökk yfir 1,60 metra.
Rakel Ósk Dýrfjörð Björnsdóttir hafnaði í þriðja sæti í stangarstökki kvenna með stökk upp á 3,12 metra.
Hægt er að sjá öll úrslit mótsins hér http://46.149.29.198/motfri/SelectedCompetitionEvents.aspx
Lesa meira