• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Góð stemning í Gamlárshlaupi og göngu UFA

Ágæt þátttaka var í Gamlárshlaupi og göngu UFA sem fór fram í morgun í blíðskaparveðri en leiðinda hálku. Mættu um 70 manns til leiks og hlupu eða gengu 5 eða 10 km.

Í 5 km hlaupi var Ásta Heiðrún Jónsdóttir fyrst á 25:10, önnur kvenna var Kara Hildur Axelsdóttir á 29:39 og þriðja var Aþena Ómarsdóttir á 30:18. Fyrstur karla var Óliver Einarsson á 25:27, annar var Elías Gunnar Þorbjörnsson á 25:40 og þriðji var Ágúst Ívar Árnason á 29:41.

Í 10 km hlaupi sigraði Valur Þór Kristjánsson í karlaflokki á 38:00, annar var Baldvin Þór Magnússon á 41:45 pg þriðji var Helgi Rúnar Pálsson á 41:19. Rannveig Oddsdóttir sigraði í kvennaflokki á 43:01, önnur var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 47:48 og þriðja var Fjóla Dröfn Guðmundsdóttir á 47:51.

Að hlaupi loknu var boðið upp á súpu frá RUB23 veitt verðlaun fyrir fyrstu sæti og búningakeppni auk útdráttarverðlauna frá Súlum, Bjargi og Nóa Síríus.

Hér má sjá tíma allra sem hlupu. Er einhverjar ábendingar eru varðandi úrslitin má koma þeim til skila á netfangið rannodd@gmail.com


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA