• UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

Víðavangshlaup UFA og 66°Norður

Lokahlaupið í Víðavangshlaupasyrpu UFA og 66°Norður fór fram í morgun í blíðskaparveðri. Hér má sjá tíma allra og úrslitin í stigakeppninni.

Að hlaupi loknu voru veitt verðlaun fyrir stigakepnina og hlutu sigurvegarar glaðning frá 66°Norður.

Í flokki 11 ára og yngri sigruðu Aþena Ómarsdóttir og Óliver Einarsson.

Í flokki 12–16 ára var Helgi Pétur Davíðsson stigahæstur, annar var Egill Bjarni Gíslason og þriðji var Einar Árni Gíslason.

Í kvennaflokki var Rannveig Oddsdóttir stigahæst, önnur var Sigríður Björg Einarsdóttir og þriðja var Guðrún Nýbjörg Brattberg Svanbjörnsdóttir.

Í karlafokki var Bjartmar Örnuson stigahæstur, annar var Gísli Einar Árnason og þriðji var Örvar Sigurgeirsson.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA