• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Fréttir

Meistarmótið í fjölþrautum

Meistarmótið í fjölþrautum fór fram á Laugardalsvelli um helgina.  Elvar Örn sigraði í tugþraut sveina(15-16ára) með 5450 stigum, Bjarki Gíslason varð annar í tugþraut drengja(17-18 ára) með 6074 stig sem er árangur sem er yfir lágmarkinu á Norðurlandamótið í fjölþrautum, hann var að bæta sig í langstökki og fleiri greinum.  Frábær árangur til hamingju Bjarki.  Þorsteinn Helgi varð 3. í drengja þrautinni með 5311 stig.  Hulda Margrét Hauksdóttir varð þriðja í sjöþraut meyja með 3093 stig, Valgerður varð 3. í sjöþraut kvenna með 3590 stig.  Til haminjgu með árangurinn krakkar.
Lesa meira

Vormót UFA

Vormót UFA fer fram sunnudaginn 3. júní Sjómannadaginn og hefst kl. 13:00.  Keppnisgreinar eru langstökk, boltakast og 60 metra hlaup hjá 8 ára og yngri og 9-10 ára, langstökk, spjótkast og 100 metra hlaup hjá 11-12 ára, langstökk, spjótkast 100 og 600 metra hlaup hjá 13-14 ára og langstökk, spjótkast 100 og 800 metra hlaup hjá körlum og konum.  Skráningar á mótaforritinu á fri.is til miðnættis föstdagsins 1. júní.
Lesa meira

Æfingatafla sumarsins

Æfingar sumarsins hefjast þriðjudaginn 29. maí og er öllum frjálst að prófa fyrstu vikuna, sunnudaginn 3. júní fer svo Vormót UFA fram á Akureyrarvelli og er öllum sem prófa boðin þáttaka í því móti.

Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA