• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Fréttir

Lágmörk í keppnisferðir erlendis

Bjartmar Örnuson og Bjarki Gíslason hafa báðir náð lágmörkum á mót erlendis í sumar.  Bjatmar í 800 m hlaupi á NM unglinga í Esbjerg í Danmörku 1.-2. september og Bjarki í tugþraut á NM í fjölþrautum í Vejle  í Danmörku 23.-24. júní, og í stangarstökki á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Belgrade í Serbíu 23.-27. júlí og NM unglinga í Esbjerg í Danmörku 1.-2. september.  Ljóst er að Bjarki hefur verið valin í liðið á NM í tugþrautum, eftir er að velja á hin mótin.
Lesa meira

Vormót UFA

Vormót UFA fór fram sunnudaginn 5. júní á Akureyrarvelli í miklum með eða mótvindi.  Keppendur voru rúmlega 100 flestir frá UFA en einnig frá UMSE, HSÞ, UMSS og Eik.  Margir voru að keppa í sínu fyrsta móti og höfðu gaman af.  Úrslitin eru komin inn á mótaforritið á fri.is.  Þökkum öllum sem hjálpuðu okkur við framkvæmdina fyrir hjálpina og ykkur krakkar fyrir þátttökuna.

http://157.157.136.9/cgi-bin/ibmot/urslitib718D1.htm 

Lesa meira

Sólarlagshlaup UFA

Góður hópur fólks tók þátt í sólarlagsferð UFA upp í Hlíðarfjall í gærkvöldi. Lagt var upp frá Bjargi kl. 22:00 og gengið, skokkað eða hjólað upp að skíðahóteli. Sólarlagið naut sín ekki sökum skýjafars en milt var í veðri og gott útivistarveður. Að ferðinni lokinni létu þátttakendur þreytuna líða úr sér í heitu pottunum á Bjargi.
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA