Meistarmótið í fjölþrautum fór fram á Laugardalsvelli um helgina. Elvar Örn sigraði í tugþraut sveina(15-16ára) með 5450 stigum, Bjarki Gíslason varð annar í tugþraut drengja(17-18 ára) með 6074 stig sem er árangur sem er yfir lágmarkinu á Norðurlandamótið í fjölþrautum, hann var að bæta sig í langstökki og fleiri greinum. Frábær árangur til hamingju Bjarki. Þorsteinn Helgi varð 3. í drengja þrautinni með 5311 stig. Hulda Margrét Hauksdóttir varð þriðja í sjöþraut meyja með 3093 stig, Valgerður varð 3. í sjöþraut kvenna með 3590 stig. Til haminjgu með árangurinn krakkar.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.