Bjartmar Örnuson og Bjarki Gíslason hafa báðir náð lágmörkum á mót erlendis í sumar. Bjatmar í 800 m hlaupi á NM unglinga í Esbjerg í Danmörku 1.-2. september og Bjarki í tugþraut á NM í fjölþrautum í Vejle í Danmörku 23.-24. júní, og í stangarstökki á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Belgrade í Serbíu 23.-27. júlí og NM unglinga í Esbjerg í Danmörku 1.-2. september. Ljóst er að Bjarki hefur verið valin í liðið á NM í tugþrautum, eftir er að velja á hin mótin.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.