• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Fréttir

Unglingalansdmót á Höfn

Önnur stærsta útihátíðin um helgina er, samkvæmt fréttum, Unglingalandsmótið á Höfn í Hornafirði.  Talið er að þar sé um 6000 manns. Þar af eru 18 keppendur frá UFA ásamt fjölskyldum sínum.  Veður hefur verið með besta móti og mótið gengið vel, frekari fréttir eru á www.ulm.is.  Keppni hófst í gær og voru okkar krakkar að standa sig með sóma.  Ef stiklað er á stóru þá eru helstu úrslit þessi:

Föstudagur:
Ásgerður Jana varð 3. í spjóti í flokki 11 ára stelpna.
Bjarki Kjartansson státar af 1. sæti í langstökki 12 ára stráka.
Hjalti Björnsson varð 2. í spjótkasti 13 ára stráka.
Heiðrún Dís náði 3. sæti í spjótkasti 14 ára stelpna.
Snorri Björn varð einnig 3. í kúluvarpi í flokki 14 ára stráka.
Þorsteinn Helgi hampaði 1. sætinu í kúluvarpi í flokki 17-18 ára stráka.

Laugardagur:
Bjarki Kjartansson vann 1. sætið í hástökki 12 ára stráka.
Snorri Björn varð 1. í 800m hlaupi 14 ára stráka.
Þorsteinn Helgi vann 1. sætið bæði í hástökki og spjótkasti í flokki 17-18 ára stráka.

Þetta eru aðeins árangrar þeirra sem náðu á verðlaunapall en auk þeirra voru margir að ná árangri sem dugir í úrslit ýmissa greina og margir með persónulegar bætingar.  Of langt mál yrði að telja upp alla góðu árangrana sem hafa náðst á þessum tveimur dögum, en við óskum krökkunum engu að síður til hamingju með þá.
Á morgun er síðasti keppnisdagurinn og verður mótinu slitið annaðkvöld með stórri flugeldasýningu og balli.  Við óskum öllum sem staddir eru á Höfn góðs gengis á morgun og síðast en ekki síst, góðrar skemmtunnar!

Lesa meira

MÍ fullorðina á Sauðárkróki

Bjartmar Örnuson var sá eini sem náði verðlaunasæti um helgina en hann fékk silfur í 800 m hlaupi, önnur stigasæti voru Bjartmar 4. í 1500 m hlaupi, Þorsteinn Helgi 5. í 110 grind, Elvar Freyr 5. í 400 grind og 6. 110 m grind, Bjarki 5. í þrístökki, Elvar Örn 5. í stöng og Inga Vala 6. í 800 m hlaupi. 

Lesa meira

Utanyfirgallar fyrir Unglingalandsmótið

Vinsamlegast látið mig strax vita ef þið viljið kaupa galla fyrir Verslunarmannahelgina, panta á fimmtudaginn fleiri galla.  Sendið tölvupóst á katoti@simnet.is með nafni og stærð sem fyrst.  Verð 14 ára og yngri 6000 15 ára og eldri 6500.
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA