Bjarki Gíslason jafnaði drengjametið sitt 4,40 m og sigraði í stönginni, einnig náði hann silfri í þrístökki stökk 14,04 m sem er bæting, Bjartmar bætti sig einnig í 400 m þar sem hann varð 4. á 50,76 sek. Til hamingju drengir.
Lesa meira
7 keppendur frá UFA eru á leiðinni til Reykjavíkur að taka þátt í Mí fullorðinni sem fer fram á morgun laugardag og sunnudag í Laugardalshöllinni keppni stendur frá 11 - 16 báða dagana og er hægt að fylgjast með úrslitum á mótaforritinu á fri.is
http://www.fri.is/pages/articles6/motaforrit/ Óskum við þeim öllum góðs gengis.
Lesa meira
Bjarki sigraði í þrístökki, stökk 13,84 m og í stangarstökki þar sem hann stökk 4,20 m og fékk silfur í 60 m grindahlaupi með 8,84 sek í flokki pilta 17-18 ára, aðrir verðlaunahafar dagsins voru Örn Dúi Kristjánsson brons í 60 m grind 9,55 sek og þrístökki 11,56 m í flokki sveina 15-16 ára. Bjartmar brons í 400 m á 51,68 sek, Elvar Freyr Pálsson brons í 60 m grind 10,84 sek og Kristján Ingi Rúnarsson brons í þrístökki með 11,35 m og sveit UFA fékk silfur í 4x400 m hlaupi á tímanum 3:39,38 mín í flokki ungkarla 19-22 ára. Til hamingju með árangurinn strákar.
Lesa meira