• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Starri og Rannveig fyrst í vetrarhlaupi

Fimmta vetrarhlaup UFA fór fram í morgun. Keppendur voru 16 sem er óvenju fátt. Ekki verður dræm þátttaka skrifuð á veður eða færð því göturnar voru marauðar og veður hið ákjósanlegasta til langhlaupa, svolítið svalt en stillt. Starri Heiðmarsson var fyrstur í mark á tímanum 41:31, mínútu á eftir honum kom fyrsta kona Rannveig Oddsdóttir í mark og þar á eftir Heimir Guðlaugsson á 42:56 og fast á hæla honum kom önnur kona, Sigríður Einarsdóttir.
Hér má sjá tíma allra sem hlupu og stöðuna í stigakeppninni þegar aðeins eitt hlaup er eftir.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA