Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

Í árlegu hófi Íþróttaráðs Akureyrarbæjar s.l. þriðjudag 27. desember var Íslandsmeisturum UFA árið 2011 veitt viðurkenning í formi viðurkenningarskjals sem verður hengt upp í aðsetri félagsins. Sennilega hafa Íslandsmeistaratitlarnir aldrei verið fleiri í sögu félagsins og aldrei fleiri einstaklingar náð þessum árangri eða 19.
Gamlárshlaup og ganga UFA fer að venju fram á gamlársdag. Eins og undanfarin ár er hlaupið frá líkamsræktarstöðinni Bjargi, 10 km ganga fer af stað kl. 10:00 en 10 km hlaup og 5 km hlaup og ganga kl. 11:00. Að hlaupi loknu verður boðið upp á súpu, veitt verðlaun fyrir flottustu búningana og útdráttarverðlaun. Við hvetjum alla til að taka þátt í skemmtilegu hlaupi og styrkja um leið frjálsíþróttafólk UFA.