• UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

RIG Hafdís með mótsmet

Keppni í frjálsum íþróttum á Reykjavík International Games fór fram í Laugardalshöllinni á laugardaginn. Á RIG er keppt í hinum ýmsu íþróttagreinum og er keppendum boðin þátttaka eftir árangri þeirra í þeim greinum sem keppt er í, átta erlendum keppendum var boðið á mótið nú. Að þessu sinni var sjö keppendum frá UFA boðin þátttaka en þau sem gátu þegið boðið voru: Hafdís Sigurðardóttir, sem nú hefur gengið til liðs við UFA, Ásgerður Jana Ágústsdóttir, Kolbeinn Höður Gunnarsson og Rannveig Oddsdóttir.
Hafdís stóð sig frábærlega en hún sigraði langstökk kvenna er hún stökk 6,14m og setti nýtt mótsmet og bætti sinn persónulega árangur um 12cm hún varð svo í 3.sæti í 60m hlaupi á 7,79sek.
Kolbeinn Höður hljóp 400m á 49,93sek og varð í 4.sæti og bætti með því sinn árangur innanhúss. Ásgerður Jana stökk 1,58m í hástökki og varð í 3.sæti.
Flottur árangur á sterku móti.

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA