Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fyrir 11-14 ára verður haldið á Þórsvelli á Akureyri 16-17. ágúst
Lesa meira
Hafdís Sigurðardóttir keppti nú í dag í forkeppni í langstökki kvenna á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Swiss þessa dagana. Gerði hún öll þrjú stökkin sín gild í keppninni en það síðasta var langlengst eða 6,27m. Var hún aðeins 4 sætum frá því að komast í úrslit sem telst mjög góður árangur á hennar fyrsta Evrópumeistaramóti. Glæsilegt hjá þér Hafdís og til hamingju með árangurinn.
Þess má geta að hún hefur ekki lokið keppni á mótinu því hún keppir í 200m hlaupi á fimmtudaginn! Við hvetjum alla til að fylgjast með með þessari glæsilegu íþróttakonu spreyta sig meðal þeirra bestu í Evrópu - ÁFRAM HAFDÍS!!!
Lesa meira
Bikarkeppni FRÍ fór fram um síðastliðna helgi á Laugardalsvelli. Líkt og undanfarin ár þá keppir UFA undir merkjum Norðurlands ásamt UMSS, UMSE og HSÞ. Skemmst er frá því að segja að lið Norðurlands hafnaði í þriðja sæti í heildarstigakeppninni með 141 stig en lið ÍR sigraði með 192 stig og FH hafnaði í öðru sæti með 165 stig.
Lesa meira