• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Fréttir

Komandi helgi

Við hvetjum alla félagsmenn til að taka þátt í eða starfa í Akureyrarhlaupinu á laugardaginn. Veðurspáin er svolítið kuldaleg en við látum það ekki á okkur fá og fjölmennum í hlaupið sem verður eitt það glæsilegasta í 16 ára sögu hlaupsins. Skoðið heimasíðu hlaupsins og sjáið hvað er í boði.
Á sunnudaginn fjölmennum við svo á Bikarkeppni 2. deildar á Króknum og hvetjum okkar fólk. Við stefnum á sigur og 1. deildar sæti að ári. Keppni hefst kl. 14:00 og líkur 17:30. Áfram UFA/UMSE.

Lesa meira

Æfingatafla vetrarins

Æfingataflan er komin inn undir æfingar hér til hliðar.  Æfingar hefjast 24. september nema í Boganum sem opnar ekki fyrr en 1. október.  Öllum er boðið að prufa til 15. október.
Lesa meira

Bikarkeppni 16 ára og yngri

Fór fram á Kópavogsvelli í gær, krakkarnir stóðu sig ágætlega og lentu í 4. sæti þrátt fyrir veikindi og meiðsli í hópnum. Elvar Örn sigraði í langstökki og varð 3. í spjóti, Harpa Lind varð 2. í spjóti og 3. í kúluvarpi.  En við vorum með sameiginlegt lið með UMSE eins venja er í Bikarnum.
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA