Langar ţig ađ hlaupa?
UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.
UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.
Í morgun fór fyrsta vetrarhlaup vetrarins fram, en vetrarhlaupin samanstanda af sex hlaupum sem fara fram síðasta laugardag í mánuði frá október til mars. Hlaupið fór fram í blíðskaparveðri og tóku 34 hlauparar þátt sem er metþátttaka frá upphafi vetrarhlaupanna og lofar góðu fyrir veturinn. Það er greinilega uppgangur í hlaupaíþróttinni í bænum og það var gaman að sjá hve margir nýjir hlauparar voru með.
Hlaupinn var 10 km. hringur frá Bjargi. Í karlaflokki var Bjartmar Örnuson fyrstur á 36:31, Bjarki Gíslason annar á 41:59 og Halldór Halldórsson þriðji á 42:11. Í kvennaflokki var Rannveig Oddsdóttir fyrst á 39:20, Sigríður Einarsdóttir var önnur á 42:56 og Birgitta Guðjónsdóttir var þriðja á 49:23.
Hér má sjá tíma allra sem hlupu og stöðuna í stigakeppninni eftir fyrsta hlaupið.
Laugardaginn 27. október hefst vetrarhlaupasyrpa UFA. Vetrarhlaupin eru sex sjálfstæð hlaup sem fara fram í lok mánaðar frá október fram í mars og er keppt í stigakeppni. Hlaupin hefjast við Bjarg kl. 11:00 og þaðan er hlaupinn 10 km. hringur.
Ljósgjafinn/Siemens, Halldór Ólafsson úr og skart og Bjarg eru styrktarðailar hlaupanna í vetur og gefa glæsileg verðalaun til sigurvegara í stigakeppninni og útdráttarverðlaun sem dregin verða út eftir síðasta hlaupið.
Hér eru nánari upplýsingar um hlaupin.