Bjarki Gíslason hefur verið valinn Íþróttamaður UFA 2007, óskum við honum hjartanlega til hamingju um leið og við óskum ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Bjartmar Örnuson setti Íslandsmet í 1000 m hlaupi í flokki 19-20 ára á áramóti Fjölnis á laugardaginn hann hljóp á 2.37,23 mín og var í öðru sæti í hlaupinu. Til hamingju Bjartmar. Keppendur frá UFA á mótinu voru 6 aðrir verðlaunahafar voru Bjarki Gíslason sem sigraði í stöng stökk 4,20m og Hulda Margrét Hauksdóttir sem sigraði í stöng stökk 2,20m og varð 2. í kúluvarpi meyja kastaði 10,66m.
Gamlárshlaup og ganga UFA fer fram að venju á gamlársdag. Við hvetjum alla bæjarbúa til að taka forskot á áramótaheitið og ganga eða hlaupa með okkur. Hlaupaleiðirnar eru breyttar frá fyrra ári og hvetjum við þátttakendur til að kynna sér leiðina áður en farið er af stað. Hér má sjá kort af leiðunum og nánari upplýsingar um hlaupið.