• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Fréttir

Karlaliðið í 2. sæti í Bikarnum

Karlaliðið hafnaði í 2. sæti og kvennaliðið í 5. sæti, samanlagt í 4. sæti með 101 stig. Karlasveitin sigraði 4x400 m boðhlaup á tíma sem er undir Íslandsmeti 3:21,27 en fæst ekki viðurkennt þar sem keppendur voru úr fleiri en 1 félagi.  B-lið Norðurlands hafnaði í neðsta sæti en öðlaðist mikla reynslu og einhverjir voru að bæta sig.  Þetta mót sýnir okkur að við eigum fullt erindi á móti stóru félögunum.  Tökum Bikarinn á næsta ári.
Lesa meira

Starri og Rannveig fyrst í vetrarhlaupi

Fimmta vetrarhlaup UFA fór fram í morgun. Keppendur voru 16 sem er óvenju fátt. Ekki verður dræm þátttaka skrifuð á veður eða færð því göturnar voru marauðar og veður hið ákjósanlegasta til langhlaupa, svolítið svalt en stillt. Starri Heiðmarsson var fyrstur í mark á tímanum 41:31, mínútu á eftir honum kom fyrsta kona Rannveig Oddsdóttir í mark og þar á eftir Heimir Guðlaugsson á 42:56 og fast á hæla honum kom önnur kona, Sigríður Einarsdóttir.
Hér má sjá tíma allra sem hlupu og stöðuna í stigakeppninni þegar aðeins eitt hlaup er eftir.

Lesa meira

Bikarkeppni innanhús sunnudaginn 24. febrúar

HSÞ, UFA, UMSE og UMSS tefla fram sameiginlegum liðum í keppninni um helgina.  Vonum að Bikarlið Norðurlands A veiti stóru liðunum harða samkeppni um helgina og B-liðið öðlist reynslu í keppni við alla bestu frjálsíþróttamenn þjóðarinnar, gangi ykkur vel.  Farið verður frá Boganum kl. 13:00 á laugardag.
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA