• UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021

Fjáraflanir

Mikið átak hefur verið gert í fjáröflunum síðustu tvær vikur og hefur hópur iðkenda staðið fyrir ýmsum viðburðum í því skyni t.d. firmakeppni í frjálsum íþróttum, kleinubakstri og bingói. 

Bingóið var það fyrsta sem félagið hefur haldið í 5 ár en árin þar á undan hafði UFA-bingó verið haldið árlega.  Um 70 manns mættu og voru verðlaunin vegleg.  Í hléi voru veittar viðurkenningar fyrir firmakeppnina og boðið upp á glæsilegar kaffiveitingar. 

Við þökkum öllum þeim sem styrktu okkur með bingóvinningum og þeim gestum sem komu. 


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA