• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Fréttir

Innanhúsmót á sunnudaginn í Iþróttahöllinni frá 14-17

Keppnisgreinar 8 ára og yngri 40 m hlaup og langstökk án atrennu, 9-10 ára, 11-12 ára og 13-14 ára 40 m hlaup, kúluvarp og hástökk.  Keppnisgjald 1000 krónur, allir keppendur fá þátttökuviðurkenningu og drykk.  Skráningar sendist til Unnars á unnarv@ma.is
Lesa meira

Seinni keppnisdagur á MÍ 12-14 ára

Ásgerður Jana Ágústdóttir sigraði í langstökki á seinna degi MÍ 12-14 ára á sunnudaginn stökk 4,62 og Andri Már Bragson sigraði í 60 m grindahlaupi þrátt fyrir meiðsli.
Lesa meira

Fyrri keppnisdagur á MÍ 12-14 ára

Á föstudaginn héldu 11 krakkar ástamt þjálfar suður á MÍ 12-14 ára.  Fyrri keppnisdegi er lokið og sá seinni í þann mund að hefjast. 
Vel gekk hjá krökkunum í gær og má þar helst nefna að Ásgerður Jana Ágústsdóttir gerði sér lítið fyrir og vann hástökk í 12 ára flokki með stökki upp á 1,40 m, einnig komst hún í úrslit í 60 m hlaupi og endaði í 7. sæti.
Elise Marie Valjaots náði bronsi í kúluvarpi, í flokki 14 ára, þegar hún varpaði kúlunni 8,44 m.
Bjarki Kjartansson háði harða baráttu í hástökki sem endaði þannig að hann deildi 3-5. sæti með 1,40 m í flokki 13 ára.

Við óskum krökkunum til hamingju með góðan fyrri keppnisdag og sendum þeim baráttukveðjur fyrir daginn í dag.

Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA