• MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025
  • hlaup

    Langar ţig ađ hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býđur upp á hlaupaćfingar viđ allra hćfi. Kynntu ţér máliđ og prófađu ađ kíkja á ćfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Fréttir

Starfsmenn viđ 1. maí hlaup

Þeir iðkendur frjálsra íþrótta sem ekki ætla að hlaupa í 1. maí hlaupinu eru beðnir að aðstoða okkur við framkvæmd hlaupsins, við skráningu, brautarvörslu og verðlaunaafhendingu. Fundur með starfsmönnum verður haldinn að lokinni æfingu í höllinni á miðvikudagskvöld kl. 19:30. Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta hann en geta unnið á fimmtudaginn eru beðnir að hafa samband við Rannveigu í síma 8647422.
Lesa meira

Forskráning í 1. maí hlaup

Forskráning er hafin í 1. maí hlaup UFA. Hægt er að forskrá sig í Sportveri á Glerártorgi á opnunartíma, skráningargjald er þá greitt og númer afhent svo hægt er að mæta beint í hlaupið á fimmtudaginn.  Númer verða þá tilbúin til afhendingar á Glerártorgi milli kl. 10:00 og 12:30 á fimmtudag og þáttökugjald er greitt þegar númerið er sótt. Forskráningu lýkur kl. 18:00 á miðvikudag. Eftir það er hægt að skrá sig á Glerártorgi milli kl. 10:00 og 11:30 á fimmtudagsmorgun. En athugið að þá eru skráningargjöld hærri.
Nánari upplýsingar um hlaupið er að finna hér.
Lesa meira

Keppendur á mótinu í Íţróttahöllinni voru tćplega 100

Mótið tókst mjög vel og fengu þátttakendur viðurkenningu, pizzu og drykk í lok móts.  Keppendur komu frá Sauðárkróki, Siglufirði, UMSE og UFA, þökkum öllum fyrir komuna.
Lesa meira

Svćđi

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA