• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021

Fréttir

Klósettpappírssala

Við minnum iðkendur á klósettpappírssölu félagsins. Salan er í gangi allan ársins hring og er liður í fjáröflun félagsins. Þeir iðkendur sem fara til Gautaborgar í sumar fá ágóðann af sinni sölu inn á ferðareikninginn sinn svo það er um að gera að vera dugleg að selja. Svanhildur hefur yfirumsjón með pappírssölunni, hafið samband við hana í síma 8640096 ef ykkur vantar pappír.
Lesa meira

MÍ í fjölþrautum lokið, Elvar Örn Íslandsmeistari

Elvar Örn sigraði í tugþraut pilta með 4634 stig, Einar Daði var stigahærri en lauk ekki keppni.  Agnes Eva varð 3. sjöþraut meyja með 3665 stig og Heiðrún Dís 5. með 3516 stig.  Sannarlega glæsileg byrjun á utanhúss tímabilinu.  Til hamingju með árangurinn.
Lesa meira

MÍ í fjölþrautum í Borgarnesi

UFA á 3 keppendur á mótinu, Elvar Örn í piltaflokki, hann er í 2. sæti eftir fyrri keppnisdag og Agnesi Evu og Heiðrúnu Dís í meyjaflokki eru þær í 4. og 5. sæti eftir daginn.  Heiðrún Dís bætti sig verulega í 80 m grind varð önnur á 13,28 sek sem árangur sem kemur henni inn í úrvalshópinn.  Til hamingju með það Heiðrún.  Við óskum þeim góðs gengis á morgun, en hægt er að fylgjast með úrslitum á mótaforitinu á fri.is
Lesa meira

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA