Frá stjórn UFA. Öll þátttaka á mótum sem eru ekki á vegum FRÍ og ferðir þeim tilheyrandi eru alfarið á kostnað iðkenda. Hér er átt við mót eins og Vormót UMSE sem verður haldið 18. – 19. júní n. k. á Dalvík, Sumarleika HSÞ að Laugum 12. - 13. júlí svo og önnur mót sem kunna að vera í boði í sumar og haust.
FRÍ stendur fyrir Frjálsíþróttasamband Íslands og á þess vegum eru meistaramótin og bikarkeppnir. Kostnaður vegna þátttöku okkar fólks í mótum þess er að hluta greiddur af UFA .
Þá viljum við minna þá á sem stunda frjálsíþróttaæfingar hjá UFA og hafa ekki greitt fyrir þær að gera skil hið fyrsta.