Flýtilyklar
Fréttir
Silfurleikar ÍR
UFA átti 8 keppendur á Silfurleikum ÍR á laugardaginn og komust 7 þeirra á verðlaunapall. Magnús Aríus Ottósson sigraði í hástökki og þrístökki, varð 2. í 60 m hlaupi og 3. í kúluvarpi 11 ára. Ásgerður Jana vann hástökkið á 12 ára flokki. Kolbeinn Höður vann 60m, 60m grind og 800 m hlaup og varð 2. í 200m hlaupi. Stefán Þór varð 3. í 800m hlaupi 15-16 ára, Örn Dúi vann 60m grind og þrístökk og varð 3. í hástökki. Heiðrún Dís varð 2. í 60m grind og Agnes Eva 3. í þrístökki í 15-16 ára flokki. Til hamingju með árangurinn krakkar.
Dagatöl Ţroskahjálpar
UFA er að selja dagatöl Þroskahjálpar, göngum við í hús á brekkunni. Ef þið viljið kaupa af okkur dagatöl hafið þá samband við Svanhildi eða eldri iðkendur.
Lesa meira
Gallar í jólapakkan
Gallarnir verða pantaðir í næstu viku, vinsamlegast sendið pöntun á netfangið katoti@simnet.is fyrir 12. nóv með stærð og nafni iðkanda.
Lesa meira