• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • UFA bikar 2025

Tobbi enn með brautarmet í vetrarhlaupi

Annað hlaupið í vetrarhlaupasyrpu UFA fór fram á þriðjudaginn við ágætar aðstæður. Þorbergur Ingi Jónsson var fyrstur í mark á nýju brautarmeti 33:22 og bætti þar með eigið met frá því í október um 24 sekúndur. Annar var Ágúst Bergur Kárason á 39:09 og þriðji var Sævar Helgason á 39:09. Í kvennaflokki kom Rannveig Oddsdóttir fyrst í mark á 41:52, önnur var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 44:22 og þriðja Sigríður Einarsdótir á 46:06.

Hér má sjá tíma allra sem hlupu og stöðuna í stigakeppninni eftir tvö fyrstu hlaupin.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA