Síðasta hlaupið í vetrarhlaupasyrpu UFA þennan veturinn fór fram síðastliðinn þriðjudag.Bjartmar Örnuson kom fyrstu í mark að þessu sinni á 35:25, annar var Ágúst Bergur Kárason á 41:35 og þriðji var Arnar Bragason á 42:32. Fyrst kvenna var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 44:16, önnur var Sigríður Björg Einarsdóttir á 44:57 og þriðja var Heiðrún Dís Stefánsdóttir á 46:11.
Að hlaupi loknu voru veitt verðlaun til stigahæstu einstaklinga og liða. Þorbergur Ingi Jónsson og Sonja Sif Jóhannsdóttir báru sigur úr bítum í einstaklingskeppni, í öðru sæti urðu Ágúst Bergur Kárason og Sigríður Björg Einarsdóttir og í þriðja sæti Arnar Bragason og Guðrún Nýbjörg Svanbjörnsdóttir. Hlutu þau að launum skó og fatnað frá UnderArmour. Í liðakeppni sigraði Sérsveit Sonju með nokkrum yfirburðum og fékk í sinn hlut verðlaun frá Craft. Dregin voru út útdráttarverðlaun og fóru tveir heppnir þátttakendur heim með hlaupaúr frá Halldóri Ólafssyni úr og skart ehf. og nokkrir með páskaegg frá Nóa Síríus.
Hér má sjá úrslitin í öllum hlaupunum og í stigakeppni einstaklinga og liða.