• MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • UFA bikar 2025

Spennandi kepppni í liðakeppni vetrarhlaupanna

Annað vetrarhlaup vetrarins fór fram í gærmorgun. Aðstæður til hlaupa voru ágætar, veður stillt, en heldur kalt og hált á götunum. Hlauparar létu það samt ekki á sig fá og mættu 27 hlauparar til leiks. Stefán Viðar Sigtryggsson var fyrstur í mark á 38;33, annar karla var sveitungi hans Snæþór Aðalsteinsson 41;06 og þriðji var Gísli Einar Árnason á 41;07. Önnur í mark og fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 40;20, önnur kvenna var Sigríður Einarsdóttir á 45;40 og þriðja var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 46;43.

Líkt og í fyrsta hlaupinu var mjótt á mununum í liðakeppninni. Víkingasveitin náði bestum samanlögumtíma að þessu sinni 2:06;56, Ski-Team náið öðru sæti liðan með tímann 2:08;54 og fast á hæla þeim kom Bjarg á tímanum 2:08;48.

Tíma allra og stöðuna í stigakeppninni má sjá hér.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA