Á miðvikudaginn kl. 17:00 verður tilkynnt um val á Íþróttamanni Akureyrar 2013 við hátíðlega athöfn í Hofi. UFA á verðugan fulltrúa í hópi tilnefndra, Hafdísi Sigurðardóttur margfaldan Íslandsmeistara í spretthlaupum og langstökki og Íslandsmethafa í 60m hlaupi, 300m hlaupi og langstökki utanhúss. UFA hvetur iðkendur sína, foreldra og félagsmenn til að fjölmenna í Hof og fylgjast með kjörinu.
Langar þig að hlaupa?
UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.