Gamlárshlaup Íslenskra verðbréfa og UFA

Gamlárshlaup Íslenskra verðbréfa og UFA fer að þessu sinni fram á þrettándanum og hefst við Bjarg kl. 11.00. 

Að hlaupi loknu verður boðið upp á ljúffenga súpu frá RUB23, brauð frá Bakaríinu við brúna og Hleðslu frá MS og hægt verður að láta þreytuna líða úr sér í pottunum á Bjargi.

Fjöldi útdráttarverðlauna í boði auk þess sem veitt verða verðlaun fyrir best klædda liðið í búningakeppni. Nánari upplýsingar um hlaupið má lesa hér.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA