• UFA bikar 2025
  • MÍ 11-14 2021
  • hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

Anna Berglind og Þorbergur sigurvegarar vetrarhlaupanna 2014-2015

Síðasta hlaupið í vetrarhlaupasyrpu UFA fór fram í morgun við kjöraðstæður, auðar götur og fremur stillt veður. Að þessu sinni var það Anna Berglind Pálmadóttir sem kom fyrst í mark á 39:48, önnur kvenna var Guðrún Arngrímsdóttir á 46:22 og þriðja var Bryndís María Davíðsdóttir á 46:50. Fyrstur karla var Snæþór Aðalsteinsson á 40:25, annar var Jón Sverrir Friðriksson á 41:44 og þriðji var Finnur Dagsson á 41:50.

Að hlaupi loknu voru veitt verðlaun fyrir sigur í stigakeppni karla og kvenna og liðakeppni auk útdráttarverðlauna. Voru það styrktaraðilar hlaupsins, Bjarg, Halldór Ólafsson úr og skart, Craft, Nói Síríus og Kaffi ilmur sem gáfu verðlaunin. Í Stigakeppni karla bar Þorbergur Ingi Jónsson sigur úr bítum, annar var Aðalsteinn Svan Hjelm og þriðji Snæþór Aðalsteinsson. Í stigakeppni kvenna var Anna Berglind Pálmadóttir hlutskörpust, önnur var Sigríður Einarsdóttir og þirðja Guðrún Nýbjörg Brattberg Svanbjörnsdóttir. Í liðakeppninni sigraði lið Herra Míós.

Hér má sjá úrslit allra hlaupanna.

 


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA