Mæting í Lystigarðinn við LYST-kaffihús þar sem hlaupið er ræst til vesturs. Hlaupið upp stíginn til vesturs, farið út um grænt hlið og beygt þar strax til suðurs í átt að SAK. Farið er niður bílastæðið við SAK áfram niður Eyrarlandsveg, meðfram Lystigarðinum, framhjá MA að Hrafnagilsstræti. Þar er beygt til vinstri og farið upp Hrafnagilsstræti að Þórunnarstræti þar sem aftur er beygt er til vinstri. Hlaupið suður að göngustíg sem liggur meðfram heimavist MA/VMA, beygt til vinstri inn á hann, loks er tekin 90 gráðu beygja á göngustígum og þaðan hlaupið inn í og í gegnum garðinn að LYST- kaffihúsi. Og svo er hringurinn endurtekinn 😊
Hlaupinu lýkur eftir fimm hringi.
Leiðin er 6 km.