Mæting í Lystigarðinn við Lyst kaffihús þar sem hlaupið er ræst til norðurs. Þar er hlaupið út úr garðinum og upp planið hjá MA. Efst á MA-planinu er farið yfir Þórunnarstræti, þaðan í suður að og yfir Miðhúsabraut. Hlaupið niður Miðhúsabraut að hringtorgi við Naustagötu, haldið þar áfram suður Naustabraut og upp Wilhelmínugötu. Þaðan er farið beint yfir Kjarnagötu, beygt til hægri og hlaupið norður. Við hringtorgið á Kjarnagötu er haldið áfram niður Naustagötu, að hringtorgi, beygt til vinstri og sama leið hlaupin til baka, þ.e Naustabraut og Miðhúsabraut að Þórunnarstræti, þar sem farið er aftur yfir Miðhúsabraut. Hlaupið norður Þórunnarstrætið að MA, yfir planið og endað hjá Kaffi Lyst. Leiðin er 6 km.

Miðasala hefst kl. 17:00 í Kaffi Lyst og ræsing verður 17:30. Miðinn kostar 1000 kr og má greiða á staðnum (með peningum) eða millifæra inn á reikning 0565-26-494291 kt. 490922-0160. Gott er að skrifa „Vetrarhlaup“ sem skýringu og nauðsynlegt er að sýna staðfestingu á millifærslu í miðasölu.
